Jíbbí !!!!!!!!!

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Gunnsla
  • Netfang: gudnysoley@gmail.com
  • Hjúskaparstaða: Frátekin og upptekin
  • Um mig: Hvatvís prakkari.

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvað er uppáhaldsávöxturinn þinn?

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prins er týndur !!!!!

06. ágúst 2007 klukkan 23:22
Ég er ekki sérlega hamingjusöm þessa dagana þar sem að elsku kisinn minn er týndur í stórborginniGráta
Ég sakna hans svo mikið og finnst ekki skemmtileg tilhugsunin að hann sé eh staðar villtur, svangur og hræddur.


Set hérna inn auglýsinguna sem að ég setti á kattholt.is

KÓPAVOGUR - TÝNDUR. BÝR Í KEFLAVÍK TAPAÐIST Í KÓPAVOGI.
Prins er 5 ára Gulbröndóttur högni, geldur og örmerktur en ekki með ól. Hann tapaðist 3. ágúst frá Fensölum í Kópavogi þar sem hann var í pössun en kisi býr í Keflavík. Prins er þekktur á því að hann er með litlar rifur á eyrunum eftir slagsmál. Eigandi er Guðný Sóley



Hérna eru nokkrar myndir af elsku kisulynginum mínum.



Endilega sendið mér email á gudnysoley@gmail.com ef að þið vitið eh um afdrif hans.

Ef þú ert með bloggsíðu viltu þá reposta þessa auglýsingu þar.

Hvernig leitar maður annars af ketti??





Úr orðabók Gunnsu Senior.

26. júní 2007 klukkan 18:31
Þú ert:

Baby Born : ef þú fæddist á árunum 2000 til 2007.

Diapers : ef þú fæddist á árunum 1990 til 1999.

Junior :  ef þú fæddist á árunum 1985 til 1989.

Youngster : ef þú fæddist á árunum 1980 til 1984.

Senoir : ef þú fæddist á árunum 1970 til 1979.

  • Allir sem eru fæddir fyrir 1970 eru Gravedancers.

Staðreynd dagsins : Það eru ekki til neinar ljótar konur, bara latar.

 


Ég hlýt að vera svona svakalega fyndin......

25. júní 2007 klukkan 18:47

Nú grenja ég úr hlátri, ég er náttla svo ógeðslega skemmtileg, og fyndin  o.s.frv o.s.frv. að fólk er farið að stela blogginu mínu, og já og vill að aðrir kaupi þetta sem sín eigin skrif......

Get ekki annað en hlegið.

sjáiði bara   erlad.bloggar.is


Já bara gert copy paste frá minni síðu.

HAHAHAHAHAHAHAHAHAH..

Þetta algjörlega bjargaði deginum fyrir mér.
En spurning samt hvort maður eigi að læsa síðunni, eða kæra konuna fyrir ritstuld.

Pabbapítsa

25. júní 2007 klukkan 18:46

24. júní 2007 klukkan 19:00

Pabbi minn bjó til heimatilbúna pítsu. Ekki frásögu færandi nema að á henni má m.a. finna gulrætur. Þessi pítsa var alveg FLAPPIN AND FLiPPIN!!



Juice me up baby 2 !

15. júní 2007 klukkan 01:19
Einu sinni í gamla daga fór ég í gönguferð eitthvað til að viðra hugann. Ég ákvað að taka með mér nesti og stal grape frá mömmu. Helminginn af gönguferðinni var ég að reyna að éta grapeið þrátt fyrir að mér fyndist það ekki gott. Svo fékk ég ógeð og henti hálfétnu aldininu í götuna og man mér leið fáranlega eftir á. Oj hvað þetta var vont grape, getur verið að fólk borði þetta í alvörunni?
Þetta var þegar ég bjó á Suðurgötunni og ég henti grapeinu ofarlega á Suðurgötunni og sá það í langan tíma eftir á rotna út á miðri götu. Ég fékk alltaf sömu ógeðstilfinninguna og hugsaði, ALDREI AFTUR SKAL ÉG LEGGJA GRAPE MÉR TIL MUNNSÖskrandi

Það var ekki fyrr en akkurat i dag sem ég braut það loforð. Fyrst mér hefur áskotnast þessi forláta safapressa fór ég bónus og fyllti körfuna af öllum ávaxtategundum, þar á meðal mínum vesta óvini grape. Ég trúi á second chances og bjó mér svo til drykk sem kallast heilaþvottur epli, appelsína, pera og grape. Til að gera langa sögu stutta var ég farin að spegla mig í klósettskálinni eftir 2 mín.

I said it before and ill say it again: ALDREI AFTUR SKAL ÉG LEGGJA GRAPE MÉR TIL MUNNSÖskrandi


Já herra Grape þú mátt sko alveg henda þér í ruslið mín vegna.

Matur sem ég borða ekki:
  • Beikon
  • Aspas
  • Grape
  • Kræklingur
  • Ananas
                        Spurning dagsins: Borðar þú Grape?

Juice me up baby!

14. júní 2007 klukkan 00:54
Minn heittelskaði gat ekki beðið og gaf mér afmælisgjöfina nokkrum dögum fyrir afmælið mitt. Pakkinn var huge og í bleikum pappír og þar sem ég hata bleikt varð ég að rífa utan af gjöfinni strax. Þá kom þetta í ljós
Kenwood vita pro active.................eimmitt það sem mig langaði í safapressa af kröftugustu gerð.

Þegar ég var búin að prófa að mixa nokkra drykki áttaði ég mig á því að mig vantaði uppskriftabók og fór því í bókabúðina og keypti þessa bók.


Í kvöld mixaði ég mér svo safa úr gulrótum, spínati og múskati. Hann var vægast sagt ógeðslegur, spínat er gott og gulrætur eru góðar en saman er þetta brúnt á litinn og á bragðið eins og eitthvað sem hefur úldnað í glasi í 4 mán. Ég held ég haldi mig við ávaxtasafana Óákveðinn

Svo er auðvitað afmælið á föstudaginn, ætla ekki að hafa kökur bara safa.....safapartý!

Athyglisverðasta staðreynd dagsins: Epli og gulrætur eru konungur og drottning safagerðar.

Finally :)

09. júní 2007 klukkan 23:53
Jæja, finally erum við Elvar búin að finna okkur íbúðSvalur

Flytjum 1. ágúst og erum voða happy.





Baðið er rosa smart Ullandi




Eldhúsið er bjart og rúmgott með nógu skápaplássiHlæjandi




Huge stofa með sólarsvalir í suðvesturHissa


Í albúminu nýja húsið er hægt að skoða fleiri myndir.
http://admin.bloggar.is/?pageID=5&catID=35090

Endalega tékkið á þessu.

Kveðja Guðný Sóley verðandi Breiðhyltingur.

Winners train, losers complain.

07. júní 2007 klukkan 14:21
Það er komin nýr dálkur á bloggið.
Hann mun innlhalda mínar uppáhaldsæfingar.
Það er til svo ótrúlega mikið af æfingum og ég mun deila með ykkur þeim æfingum sem mér likar best við.
Enjoy.
Og allir i gymið.

Fuglaskoðunarfélagið Á Ferð og Flugi

30. maí 2007 klukkan 22:34
Fuglaskoðunarfélagið Á Ferð og Flugi hefur verið stofnað. Öllum er frjálst að skrá sig í klúbbinn. Félagið hefur nú þegar eignast kíki og fuglaskoðunarbók. Meðlimir eru 3.

Málsháttur dagsins: Betri er einn fugl í skógi en tveir í búri.

Ert það þú sem hefur gaman að eymd annara?

29. maí 2007 klukkan 18:49
Í Hollandi er að fara af stað nýr raunveruleikaþáttur. Hann heitir win a kidney. Þátturinn fjallar um konu sem að liggur fyrir dauðanum og 3 nýrnaveika keppendur sem munu einnig deyja bráðlega ef að þeir fá ekki nýtt nýra. Konan þarf að gera upp á milli hver af þessum keppendum fær nýra úr henni þegar hún deyr. Keppendur þurfa að taka þátt i allskonar viðbjóðslegum þrautum til að fá stig og svo geta áhorfendur skrifað konununni email, sagt sína skoðun og hjálpað konunni að velja hver fær nýrað.....það er að segja hver fær að lifa.

Nei ég er ekki að bulla.....
Þetta er svo rangt og twisted að ég veit ekki hvar ég á að byrja.
Hver mun horfa á þetta, hver lét plata sig útí þetta, hver hefur gaman að horfa á dauðvona fólk hafa sig að fíflum og vera niðurlægt í sjónvarpinu. Hvað í andskotanum er í gangi???

http://thescotsman.scotsman.com/index.cfm?id=832572007

Endilega kommentaðu og tell me what you think !!!